Glymur í Hvalfirði
Mæting kl 10 á bílastæði á Langamel hjá Stóra-Botni. Gengið að Botnsá og farið yfir ána á trjádrumbi nálægt Þvottahelli. Gengið upp með Glymsgljúfri, stefnum á að vaða yfir ána fyrir ofan fossinn Glym og ganga niður um Glymsbrekkur vestan ár. Þessi hringur er um 7 km langur og margt að skoða svo við áætlum að vera um 4 klst.
Munið eftir að hafa vaðskóna með ásamt klæðnaði eftir veðri og nesti.
Göngustjóri: Jónína Pálsdóttir.
