Ferðafélag Borgarfjarðarhéraðs, skammstafað FFB, var stofnað þann 1. mars 2021 í Borgarnesi. Félagssvæðið er Borgarfjörður og nágrenni. Markmið félagsins er að stuðla að gönguferðum og öðrum ferðalögum um Ísland, einkum á félagssvæðinu.
Hér er hægt að skrá sig í félagið. Einnig er hægt að gera það með því að senda tölvupóst á netfangið ffb@ffb.is þar sem fram koma fullt nafn, kennitala, netfang, farsímanúmer og heimilisfang, auk þess sem taka þarf fram hvort viðkomandi er félagi í FÍ eða öðrum deildum þess.
Hér er hægt að fylgjast með starfsemi félagsins á Facebook.
Merki Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs
Bjarni Guðmundsson, fyrrverandi prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri setti fram tillögu að merki félagsins. Heiður Hörn Hjartardóttir, grafískur hönnuður, sá síðan um að útfæra tillöguna og ljúka verkinu.
Í merkinu má finna tilvísanir í borgfirska náttúru. Merkið er notað á kortum, skiltum og hverskyns auglýsingum um gönguferðir og fleira, sem tengist starfsemi félagsins.

