Akrafjall
Vegna veðurs frestum við göngunni til 27.júlí, hlökkum til að sjá sem flesta.
Mæting á bílastæðinu við Akrafjall, beygt af Akranesvegi við gámastöðina.
Genginn hringur á fjallinu um Háahnúk, Jókubungu og Geirmundartind. Gangan er 12 – 14 km. og heildarhækkun allt að 1.000 m., breytilegt undirlendi, frekar hart. Gangan gæti tekið rúmar 6 klst.
Munið eftir nesti og klæðnaði eftir veðri. Allir velkomnir, en þátttakendur þurfa að vera í góðu gönguformi.
Seinni hluta ársins verður boðið uppá fjölbreyttar ferðir, s.s. blandaða jeppa- og gönguferð, hjólaferð, hellaferð, haustlitaferð, jógaferð og aðventuferð.
Þessar ferðir verða auglýstar í viðburðum á fb og settar á heimasíðuna þegar nær dregur.
Stefnt er á að bjóða uppá ferðir á Eiríksjökul og Baulu. Þessar ferðir eru háðar veðri og ákveðnar með stuttum fyrirvara. Áhugasamir skrái sig með netpósti til ffb@ffb.is.
Fylgist með á Facebook og á heimasíðu félagsins.
Athugið: Ferðafélag Borgarfjarðarhéraðs tryggir hvorki þátttakendur í ferðum né farangur þeirra.
Þátttakendur ferðast á áfangastaði á eigin vegum og á eigin ábyrgð.
Félagið hvetur fólk til að kaupa ferða- og slysatryggingu.