Lýsing:

Þriggja daga gönguferð frá Hallkelsstaðahlíð í Hnappadal að Bifröst. Nokkuð krefjandi ganga og töluverð hækkun. Leiðin liggur um söguslóðir og um stórbrotna náttúru. Gengið verður með dagpoka en svefnpokar, matur og annar búnaður verður trússaður milli gististaða.

  1. dagur. Gengið frá Hallkelsstaðahlíð upp Hellisdal og um Klifsskarð yfir í Hítardal. Ganga dagsins endar við Hólm, leitarmannahús í Hítardal þar sem verður gist. Gönguvegalengd um 11 km. Hækkun: u.þ.b. 400 m.
  2. dagur. Gengið austur Þórarinsdal og yfir Gvendarskarð niður í Langavatnsdal norðan við Langavatn. Þaðan er gengið út með Langavatni og gist í leitarmannahúsi á Torfhvalastöðum. Gönguvegalengd um 21 km. Hækkun: u.þ.b. 400 m.
  3. dagur. Gengið frá Torfhvalastöðum að Beilá og þaðan yfir Beilárheiði. Gengið að Vikravatni, norður fyrir Vikrafell og loks niður að Hreðavatni og þaðan að Bifröst. Gönguvegalengd um 16 km. Hækkun: u.þ.b. 300 m.

GPS-ferillinn hér fyrir neðan sýnir Vatnaleiðina nokkurn veginn eins og Ferðafélag Borgarfjarðarhéraðs hefur stikað hana. Smávægileg frávik eru í hæðarprófílnum eftir 25 km vegna þess að skeytt var saman gps-skrám sem ekki voru með samræmda hæðarmælingu.

Myndirnar eru úr gönguferð um Vatnaleiðina á vegum Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs og Ferðafélags Íslands í júlí 2025.

Erfiðleikastig:
48 km
Greining:

Share this Project