Nýr forseti kjörinn á aðalfundi

Aðalfundur Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs 2026 var haldinn fimmtudaginn 19. mars í Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum. Rúmlega 20 félagsmenn sóttu fundinn. Sigurður Magnússon, varaforseti félagsins, setti fund í forföllum Gísla Einarssonar, fráfarandi forseta. Olgeir Helgi Ragnarsson var kjörinn fundarstjóri og Gíslína Jensdóttir fundarritari.
Fyrir fundinum lágu hefðbundin aðalfundarstörf, svo sem skýrsla stjórnar, kynning endurskoðaðra reikninga félagsins og stjórnarkjör.
Gísli Einarsson, sem verið hefur forseti félagsins frá stofnun þess árið 2021, gaf ekki kost á sér til endurkjörs og var Inga Vildís Bjarnadóttir kjörin forseti félagsins í hans stað. Aðrir stjórnarmenn eru Guðrún Ólafsdóttir gjaldkeri, Gíslína Jensdóttir ritari og Sigurður Magnússon og María Jónsdóttir meðstjórnendur.
Gerðar voru nokkrar lagfæringar á samþykktum félagsins og má sjá nýjar samþykktir hér.
Jakob Guðmundsson tók myndirnar