Hallarmúli

Laugardaginn 25. júlí verður gengið á Hallarmúla milli Þverárhlíðar og Norðurárdals.

Ekið er eftir afleggjaranum að Höll og ca 1 km framhjá bænum, þar sem göngustjóri mun taka á móti ykkur. Gengið verður eftir vegarslóða inn að Svartagili og upp með gilinu. Þaðan liggur leiðin að Hólmavatni og svo suður eftir múlanum að Sjónarhóli sem er hæsti staður á Hallarmúla og loks áfram til suðurs og niður að bílunum.

Gönguleiðin er um 8 km og hækkun um 300 metrar. Brekkur eru allar aflíðandi og leiðin fremur þægileg yfirferðar. Áætlað er að gangan taki um 4 klst.

Göngustjóri er María Jónsdóttir

Dags.

25. júlí, 2026

Klukkan

10:00
QR Code

Ferðafélag Borgarfjarðarhéraðs | kt. 690321-0330 | Borgarbraut 61, 310 Borgarnesi | ffb@ffb.is