Tunga í Hvítársíðu
Tunga er líparítfjall innst í Hvítársíðu með litríku grjóti og fjölbreyttum gróðri. Af fjallinu er mikið og fallegt útsýni í góðu skyggni.
Gangan hefst klukkan 10 laugardaginn 8. ágúst. Lagt verður af stað frá hliði á girðingu við norðurenda Hvítárbrúar fyrir ofan Húsafellsskóg. Þaðan verður gengið upp á Nónborg austast á fjallinu og svo þaðan upp á topp fjallsins. Síðan verður gengið eftir endilöngu fjallinu niður á Rauðukúlu og loks á Þjófaborg ofan við ármót Hvítár og Norðlingafljóts og þaðan niður á láglendið. Á leiðinni til baka upp með Tungunni sunnanverðri verður komið við hjá skessukötlunum í gamla Hvítárfarveginum.
Gönguleiðin er 11-12 kílómetrar og uppsöfnuð hækkun er um 400 metrar, en hvergi er mjög bratt. Reiknað er með að gangan taki 5-6 klukkustundir. Víðast hvar er gengið á sléttum melum eða grónu landi, en gott getur verið að hafa göngustafi til að styðja sig við í brekkum. Ekkert vatn er að hafa á fjallinu og er því nauðsynlegt að hafa það meðferðis, að minnsta kosti 1 lítra á mann.
Göngustjóri er Sigurður Magnússon






















