Akrafjall
Mæting á bílastæðinu við Akrafjall, beygt af vegi 51 (Akrafjallsvegi) við gámastöðina.
Genginn hringur á fjallinu á Geirmundartind og Jókubungu og með brún á Háahnúk og niður Tæpugötu eða Selbrekku. Gangan er 14 -15 km. og heildarhækkun 900 -1.000 m., breytilegt undirlendi, frekar hart. Gangan gæti tekið 6 – 7 klst.
Munið eftir nesti og klæðnaði eftir veðri. Allir velkomnir, en þátttakendur þurfa að vera í góðu gönguformi.
Göngustjóri Rögnvaldur Gíslason.
