GENGIÐ Á GOTT VEÐUR

Laugardaginn 24. október er spáð björtu og góðu haustveðri og þá stendur Ferðafélag Borgarfjarðarhéraðs fyrir léttri göngu um Stallaskóg í Andakíl. Skógurinn er í klettabeltum framan í Stöllum í landi Efri-Hrepps, skammt frá Andakílsá og Hreppslaug. Mæting kl 13 við hlið á girðingu um skógarsvæðið. Ekið er upp brekkuna framhjá Hreppslaug og þegar komið er upp hana er hliðið á hægri hönd. Að lokinni göngu er tilvalið að skella sér í Hreppslaug, en þar eru meðal annars heitir pottar og gufubað og gott að slaka á í fallegu umhverfi.

Dags.

24. október, 2026

Klukkan

13:00
QR Code

Ferðafélag Borgarfjarðarhéraðs | kt. 690321-0330 | Borgarbraut 61, 310 Borgarnesi | ffb@ffb.is