Fjölskylduganga
Mæting við leikskólann Klettaborg kl. 13. Gengið þaðan eftir sjávarstígnum að Kjartansgötu og þaðan í Skallagrímsgarð. Eitt og annað skemmtilegt verður gert á leiðinni og þegar við komum í Skallagrímsgarðinn bíða konur í Svannasveitinni í Borgarnesi eftir okkur við skátahúsið með heitt kakó og eitthvað gott í gogginn og við förum í leiki í lokin.
Við hvetjum foreldra, afa og ömmur til að koma með börnunum og eiga notalega stund með börnunum.
