Aðalfundur Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs var haldinn í gær, 29. mars, í Hjálmakletti í Borgarnesi. Vel var mætt á fundinn líkt og flesta viðburði á vegum félagsins hingað til.
Í skýrslu stjórnar kom fram að mörg verkefni eru í gangi varðandi uppbyggingu gönguleiða á vegum FFB. Meðal annars er unnið að því að koma upp útsýnisskífu á Hafnarfjalli og merkja hina sjö tinda fjallsins. Þá er áfram unnið að uppbyggingu Vatnaleiðar og hönnun útivistarsvæðis á Englandi í Lundarreykjadal, í tengslum við gönguleiðir á svæðinu. Þá er verið að undirbúa gerð Borgarfjarðarbrautar en það er vinnuheitið á fimm daga gönguleið um uppsveitir Borgarfjarðar.
Á síðasta ári stóð FFB fyrir fjölda gönguferða og fyrir liggur fjölbreytt göngudagskrá fyrir árið 2023. Áhugasamir geta kynnt sér dagskrána á heimasíðu félagsins, ffb.is og á facebook síðu ffb. Næsta ferð er laugardaginn 23. apríl en þá verður gengið á milli Arnarstapa og Hellna á Snæfellsnesi.
Á aðalfundinum var Gísli Einarsson endurkjörinn forseti FFB til eins árs. Jón Heiðarsson, meðstjórnandi, var endurkjörinn til tveggja ára. Gíslína Jensdóttir var kosin ritari í stað Olgeirs Helga Ragnarssonar sem gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Aðrir stjórnarmenn eru Hrefna Sigmarsdóttir, varaforseti og Jónína Pálsdóttir, gjaldkeri, sem kjörnar voru til tveggja ára á síðasta aðalfundi.
Ný í varstjórn eru Sigurður Magnússon og María Jónsdóttir sem koma í stað Láru Gísladóttur og Sólrúnar Káradóttur.
Nefndir FFB eru þannig skipaðar:
Göngunefnd:
Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir
Sólrún Káradóttir
Birgir Hauksson
Margrét Helgadóttir
Rögnvaldur Gíslason
Stikunefnd:
Halla Magnúsdóttir
Sigurður Guðmundsson
Theodóra Ragnarsdóttir
Rakel Jóhannsdóttir
Hafþór Gunnarsson
Skálanefnd:
Jón Heiðarsson
Sigurður Halldórsson
Guðmundur Árnason
Guðmundur Finnsson
Guðmundur Skúlason
Skoðunarmenn reikninga:
Guðrún Andrésdóttir
Þórir Páll Guðjónsson
Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum sagði Jón Heiðarsson, stjórnarmaður í FFB, frá göngu sinni á hæsta fjall Afríku, Kilimanjaro og sýndi myndir úr ferðinni. Jón fór, ásamt ellefu öðrum Íslendingum, núna í janúar, alla leið á toppinn í 5895 metra hæð.
Stjórn ffb þakkar fráfarandi stjórnar- og nefndarfólki fyrir vel unnin störf, sem og öðrum sem lagt hafa félaginu lið með einum eða öðrum hætti. Þá hvetur stjórnin alla sem vettlingi geta valdið til að taka þátt í verkefnum á vegum félagsins.
Við göngu svo fislétt í lundu!