Stikun göngu- og hlaupaleiða um Hafnarfjall

Aðstandendur utanvegahlaupsins Hafnarfjall Ultra hafa nú lokið við að stika hlaupaleið og gönguleið um sjö tinda Hafnarfjalls. Eini tindurinn sem ekki er stikað upp á er Miðtindur. Einnig var komið fyrir kaðli til öryggis í klettunum upp undir toppi Hafnarfjalls, sem komið er að ef farinn er efri stígurinn eftir hryggnum. Áður var búið að stika aðalgönguleiðina upp á Hafnarfjallið sjálft.
Einnig var stikuð leið yfir Tungudal og Hafnardal, frá hliðinu norðan megin við vatnstankinn á Grjóteyrarhæðum og alveg niður að Ölveri.