Lýsing:

Glymur er næsthæsti foss Íslands, alls 198 metra hár. Hann er í Botnsá í Botnsdal í Hvalfirði. Botnsá kemur úr Hvalvatni en það er hraunstíflað vatn og annað dýpsta vatn landsins, um 160 m djúpt. Við botn dalsins er móbergsfjallið Hvalfell er hlóðst upp í gosi undir jökli á ísöld og stíflaði dalinn sem áður var mun lengri svo að þar varð til djúp kvos og þar er Hvalvatn. Glymur var lengi hæsti foss landsins en það breyttist árið 2007 þegar Morsárfossar komu undan Vatnajökli.

Fara þarf með gát þegar gengið er að fossinum, en að honum liggja þrjár gönguleiðir. Erfitt er að sjá allan fossinn frá gilbörmunum. Mun betra útsýni fæst ef gengið er upp með ánni að suðaustan og má þar sjá allan fossinn af tveimur bergsnösum, en leiðin er ekki fyrir lofthrædda. Sjálf gangan tekur um 2 klst.

Erfiðleikastig:
Greining:

Share this Project