„Bak við Hafnarfjöll“ – Dalirnir frá Grjóteyri að Ölver
Mæting á Seleyri þar sem bílamál verða skipulögð. Gangan hefst við malarnámu fyrir austan Tungukollinn. Gengið eftir góðum kindagötum upp Grjóteyrar-/Tungudalinn, sem er svolítið á fótinn upp að Dalamótum í u.þ.b. 300 m.h.y.s. Síðan liggur leiðin niður Hafnardalinn. U.þ.b. 12 km löng ganga með 300 metra hækkun.