Geirhnúkur frá Hallkelsstaðahlíð
Mæting á bílastæðinu við tjaldsvæðið í Hallkelsstaðahlíð kl. 8:30.
Gengið meðfram Hlíðarvatni en síðan farið upp með Fossá uns komið er í Fossabrekkur, þar sem verður stoppað. Þaðan er að mestu jöfn og þægileg hækkun á Geirhnúk sem er einn af hæstu tindum Snæfellsness (899m). Í bakaleiðinni verður farið í Djúpadal og gengið í gegnum náttúrufyrirbærið Nautaskörð, en þaðan á eyðibýlið Hafursstaði. Þaðan er haldið aftur að Hlíð og hringnum lokað.
Í lok göngu verður samverustund hjá Sigrúnu og Skúla í reiðskemmunni í Hlíð þar sem boðið verður uppá kaffi, heimabakkelsi, spjall og sögur.
Um er að ræða krefjandi dagsgöngu sem hentar fólki í sæmilegu gönguformi. Búast má við um 1000m hækkun og 18 km göngu og að gangan taki 7-9 klukkustundir. Vaðskór gætu borgað sig en að öðru leyti er vísað á búnaðarlista Ferðafélags Íslands fyrir dagsferð.
Verð kr. 7.000 fyrir félagsmenn og kr. 9.000 fyrir utanfélagsmenn. Innifalið er fararstjórn og léttar veitingar. Fararstjóri er Guðmundur í Dalsmynni.
Skráning á netfangið ffb@ffb.is í síðasta lagi miðvikudaginn 17. júní.






