Gengið á gott veður
Í göngudagskrá Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs fyrir árið 2026 var tilkynnt um þá nýjung að auglýsa stuttar mánaðarlegar gönguferðir með skömmum fyrirvara seinni hluta vetrar, þegar veðurspá væri hagstæð. Hér með er auglýst fyrsta gönguferðin af þessu tagi, sem verður farin næstkomandi laugardag, 14. febrúar.
Upphafsstaður göngu er við tún skammt vestan afleggjara að Gilsbakka og verður lagt af stað kl. 13. Gengið verður niður með Litla-Fljóti að Fljótsfossi og síðan niður í gegnum Skógarhraun, sem er neðsti hluti Hallmundarhrauns og er alþakið birkiskógi. Í hrauninu eru upptök Lambeyrarkvíslar og verður henni fylgt að ós við Hvítá, áður en haldið er til baka upp með Hvítá, aftur upp gegnum hraunið og meðfram Strípstjörnum, sem eru nokkrar tjarnir í Skógarhrauninu, og að upphafsstað. Gert er ráð fyrir að gangan taki u.þ.b. tvær klukkustundir. Ekki er gert ráð fyrir nestisstoppi. Mætið vel skóuð og klædd eftir veðri.
Göngustjóri er Sigurður Magnússon.
