Gráhraun – neðsti hluti Hallmundarhrauns
Hringleið um fornar götur og fallegar en fáfarnar slóðir í Gráhrauni. Upphafs- og endastaður neðan afleggjara að Gilsbakka í Hvítársíðu. Um 12 – 13 km leið.
Seinni hluta ársins verður boðið uppá fjölbreyttar ferðir, s.s. blandaða jeppa- og gönguferð, hjólaferð, hellaferð, haustlitaferð, jógaferð og aðventuferð.
Þessar ferðir verða auglýstar í viðburðum á fb og settar á heimasíðuna þegar nær dregur.
Stefnt er á að bjóða uppá ferðir á Eiríksjökul og Baulu. Þessar ferðir eru háðar veðri og ákveðnar með stuttum fyrirvara. Áhugasamir skrái sig með netpósti til ffb@ffb.is.
Fylgist með á Facebook og á heimasíðu félagsins.
Athugið: Ferðafélag Borgarfjarðarhéraðs tryggir hvorki þátttakendur í ferðum né farangur þeirra.
Þátttakendur ferðast á áfangastaði á eigin vegum og á eigin ábyrgð.
Félagið hvetur fólk til að kaupa ferða- og slysatryggingu.
![QR Code](https://ffb.is/wp-content/uploads/mec/qr_a231303bd78fbb166045e2ffb7b35a30.png)