Hestfjallshringur í Andakíl
Mæting við hlið sem er á Skorradalsvegi nr 508 mitt á milli Syðstu-Fossa og Hálsa. Gengið á Hestfjall, sem er 221 m.y.s. og farinn um 8 km langur hringur – ekki fyrir lofthrædda.
Seinni hluta ársins verður boðið uppá fjölbreyttar ferðir, s.s. blandaða jeppa- og gönguferð, hjólaferð, hellaferð, haustlitaferð, jógaferð og aðventuferð.
Þessar ferðir verða auglýstar í viðburðum á fb og settar á heimasíðuna þegar nær dregur.
Stefnt er á að bjóða uppá ferðir á Eiríksjökul og Baulu. Þessar ferðir eru háðar veðri og ákveðnar með stuttum fyrirvara. Áhugasamir skrái sig með netpósti til ffb@ffb.is.
Fylgist með á Facebook og á heimasíðu félagsins.
Athugið: Ferðafélag Borgarfjarðarhéraðs tryggir hvorki þátttakendur í ferðum né farangur þeirra.
Þátttakendur ferðast á áfangastaði á eigin vegum og á eigin ábyrgð.
Félagið hvetur fólk til að kaupa ferða- og slysatryggingu.
![QR Code](https://ffb.is/wp-content/uploads/mec/qr_3912ff5843c678fb527d896fd9956af3.png)