Hraunsnefsöxl
Mæting kl 10 á bílastæðið fyrir neðan veitingastaðinn á Hraunsnefi í Norðurárdal. Gengið eftir stikaðri leið á fjallið, sem er 394 m.y.s. Áætlaður göngutími er um 3 klst.
Við mælum með að þátttakendur hafi með sér sundfötin og skelli sér í náttúruböðin á Hraunsnefi https://hraunsnef.is/ eftir göngu, en það þarf að panta með því að hringja í síma 435-0111 eða senda tölvupóst: hraunsnef@hraunsnef.is
Göngustjóri: Jónína Pálsdóttir.
