Kistuhöfði
Mæting við Ásgarð á Hvanneyri, hús Landbúnaðarháskólans.
Gengið út í Kistuhöfða í landi Hvanneyrar. Á höfðanum er fallegt útsýni yfir á fjöllin sunnan Borgarfjarðar og til Borgarness. Gangan í heild er um 6 km.
Göngustjóri Jónína Pálsdóttir og/eða Jenný Lind Egilsdóttir ásamt heimamönnum á Hvanneyri.
