Kóranes

Laugardaginn 2. maí n.k. stendur FFB fyrir göngu út í Kóranes. Göngustjóri verður Ásdís Haraldsdóttir frá Álftanesi. Mæting er kl 11:30 við Álftanes, þaðan hefst gangan. Gengið verður að Nóntanga og þaðan niður í fjöru, eftir henni er gengið að Kúaldarey en í henni má sjá mjög fallegar bergmyndanir sem verða skoðaðar. Frá Kúaldarey verður gengið sem leið liggur að Kóranesi. Á einum stað þarf að vaða yfir ál rétt hjá Sauðhúsavogi, því þarf að huga að því hvort þátttakendur vilja ganga berfættir yfir hann eða vera í gönguskóm og hafa með sér plastpoka til að setja yfir skó og þannig forða þeim frá að blotna.

Gönguleiðin er létt og góð 10 km löng og útsýni stórbrotið.

Þar sem varptími fugla er hafinn á þessum tíma eru þátttakendur beðnir að taka ekki hunda með í þessa göngu.

Látum okkur hlakka til að taka þátt, SJÁUMST.

 

The event is finished.

Dags.

2. maí, 2026

Klukkan

11:30
QR Code

Ferðafélag Borgarfjarðarhéraðs | kt. 690321-0330 | Borgarbraut 61, 310 Borgarnesi | ffb@ffb.is