Langavatn – Bifröst – 2 skór

AFLÝST VEGNA VEÐURS

Laugardaginn 2. september. Mæting kl. 10 við BAULU söluskála.

Nú stefnum við á síðasta legginn á Vatnaleiðinni (2 skór). Gengið er frá Torfhvalastöðum við Langavatn um Beilárheiði að Vikravatni. Gengið verður á Vikrafell, ef útsýni verður gott, annars meðfram því. Síðan liggur leiðin niður í gegnum Jafnaskarðsskóg, meðfram Hreðavatni og þaðan að Bifröst. Athugið að gera þarf ráðstafanir til að komast til baka frá Bifröst, en hópurinn hittist við Baulu skálann og þá er hægt að byrja á að skutla bíl upp á Bifröst og sameinast svo í bíla upp að Torfhvalastöðum. Nauðsynlegt er að skrá sig í þessa göngu á ffb@ffb.is í síðasta lagi fimmtudagskvöldið 31. ágúst nk. Verð fyrir gönguna er 3.000 kr., sem verður rukkað með tölvupósti eftir ferð.

Göngustjórar verða Jónína Pálsdóttir og Birgir Hauksson.

The event is finished.

Seinni hluta ársins verður boðið uppá fjölbreyttar ferðir, s.s. blandaða jeppa- og gönguferð, hjólaferð, hellaferð, haustlitaferð, jógaferð og aðventuferð.
Þessar ferðir verða auglýstar í viðburðum á fb og settar á heimasíðuna þegar nær dregur.
Stefnt er á að bjóða uppá ferðir á Eiríksjökul og Baulu. Þessar ferðir eru háðar veðri og ákveðnar með stuttum fyrirvara. Áhugasamir skrái sig með netpósti til ffb@ffb.is.
Fylgist með á Facebook og á heimasíðu félagsins.
Athugið: Ferðafélag Borgarfjarðarhéraðs tryggir hvorki þátttakendur í ferðum né farangur þeirra.
Þátttakendur ferðast á áfangastaði á eigin vegum og á eigin ábyrgð.
Félagið hvetur fólk til að kaupa ferða- og slysatryggingu.

Dags.

2. september, 2023

Klukkan

Allur dagurinn
QR Code

Ferðafélag Borgarfjarðarhéraðs | kt. 690321-0330 | Borgarbraut 61, 310 Borgarnesi | ffb@ffb.is