Selgil á Húsafelli

Upphaf göngu er við fiskeldisstöðina á Húsafelli. Gengið verður inn Selgilið, að borholu hitaveitunnar. Ef fært verður vegna vatnsmagns í gilinu munum við vaða þar yfir gilið og ganga svolítið upp í Selfjallið og þaðan niður með Selgilinu að norðanverðu fram hjá Kaldárbotnum og niður hjá þjónustumiðstöðinni og þaðan í bílana. Ef okkur líst ekki á að vaða gilið göngum við aftur niður sömu megin niður í bíla. (rúmir 5 km).

Takið með vaðskó til að vaða gilið, lítið handklæði og nestisbita ef vill.

Gangan tekur um 1,5- 2,5 tíma eftir aðstæðum.

Göngustjóri: Lára Kristín Gísladóttir

Dags.

9. maí, 2026

Klukkan

10:00
QR Code

Ferðafélag Borgarfjarðarhéraðs | kt. 690321-0330 | Borgarbraut 61, 310 Borgarnesi | ffb@ffb.is