Skáneyjarbunga
Af óviðráðanlegum ástæðum reyndist nauðsynlegt að aflýsa láglendisgöngu í Stafholtstungum sem var á dagskrá laugardaginn 4. júlí. Þess í stað er boðið upp á göngu á Skáneyjarbungu fyrir ofan Reykholt.
Mæting á bílastæði við Snorrastofu kl. 10. Gengin hringleið þaðan gegnum Reykholtsskóg og um Tíðamel og upp hjá Skáney, vegslóða fylgt frá Birkihlíð á topp Skáneyjarbungu og síðan gengið þaðan aftur niður í Reykholt. Um það bil 9 km og 200 metra hækkun.
Göngustjóri: Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir
