Vatnaleiðin 10.-12. júlí

Þriggja daga gönguferð frá Hallkelsstaðahlíð í Hnappadal að Bifröst. Gengið verður með dagpoka en svefnpokar, matur og annar búnaður verður trússaður milli gististaða.

1. dagur. Farþegar koma á eigin vegum að Bifröst í Norðurárdal föstudaginn 10. júlí kl. 10:00. Rúta nær í hópinn og ekur að Hallkelsstaðahlíð, þar sem gangan hefst. Gengið upp Hellisdal og um Klifsskarð yfir í Hítardal. Ganga dagsins endar við Hólm, leitarmannahús í Hítardal þar sem verður gist. Gönguvegalengd um 11 km. Hækkun: u.þ.b. 400 m.

2. dagur. Gengið austur Þórarinsdal og yfir Gvendarskarð niður í Langavatnsdal norðan við Langavatn. Þaðan er gengið út með Langavatni og gist í leitarmannahúsi á Torfhvalastöðum. Gönguvegalengd um 21 km. Hækkun: u.þ.b. 400 m.

3. dagur. Gengið frá Torfhvalastöðum að Beilá og þaðan yfir Beilárheiði. Gengið að Vikravatni, norður fyrir Vikrafell og loks niður að Hreðavatni og þaðan að bílunum á Bifröst. Gönguvegalengd um 16 km. Hækkun: u.þ.b. 300 m.

Bókun í ferð: Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á netfangið: ffb@ffb.is. Nauðsynlegt er að skrá sig í ferðina í síðasta lagi 10. júní 2026.

Mæting: Bifröst í Norðurárdal kl. 10 föstudaginn 10. júlí.

Fararstjórn: Sigurður Magnússon.

Verð: kr. 55.000 fyrir félagsmenn og kr. 60.000 fyrir utanfélagsmenn. Innifalið: Gisting, rúta, trúss og fararstjórn.

Dags.

10. - 12. júlí, 2026

Klukkan

Allur dagurinn
QR Code

Ferðafélag Borgarfjarðarhéraðs | kt. 690321-0330 | Borgarbraut 61, 310 Borgarnesi | ffb@ffb.is