Aðalfundur Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs 2026 var haldinn fimmtudaginn 19. mars í Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum. Rúmlega 20 félagsmenn sóttu fundinn. Sigurður Magnússon, varaforseti félagsins, setti fund í forföllum Gísla Einarssonar, fráfarandi forseta. Olgeir Helgi Ragnarsson var kjörinn fundarstjóri og Gíslína Jensdóttir fundarritari. Fyrir fundinum lágu hefðbundin aðalfundarstörf, svo sem skýrsla stjórnar, kynning endurskoðaðra reikninga félagsins og stjórnarkjör. Gísli Einarsson, sem verið …
AÐALFUNDUR FFB 19. MARS 2026
Boðað er til aðalfundar Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs fimmtudaginn 19. mars 2026 kl. 20.00. Fundurinn verður haldinn í Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Tillögur að breytingum á samþykktum félagsins. Það liggur fyrir að nýtt fólk vantar í stjórn og fastanefndir félagsins (Göngunefnd, Skálanefnd og Stikunefnd). Áhugasamir mega gjarnan hafa samband með tölvupósti á netfangið ffb@ffb.is Stjórn FFB
Göngudagskrá 2026
Hér eru þær ferðir, sem búið er að ákveða fyrir árið (birt með fyrirvara um breytingar). Brottfararstaður og tími auglýstur á heimasíðu, www.ffb.is og fésbókarsíðu Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs þegar nær dregur ásamt nánari upplýsingum um hverja ferð. Þátttaka er ókeypis, nema annað sé tekið fram. Við hlökkum til að ganga með ykkur. GENGIÐ Á GOTT VEÐUR Í JANÚAR, FEBRÚAR OG MARS. …
Göngudagskrá haustið 2025
6. september: Hreðavatn / Hreðavatnssel / Hreðavatn – 2 skór. Mæting við Hreðavatnsbæinn kl. 10. Gengið þaðan yfir að Selvatni og áfram í átt að Hreðavatnsseli. Síðan í áttina að Vikrafelli og stikaða leiðin til baka á upphafsstað. Hringurinn er um 10 km. Gott er að hafa vaðskó með í þessa ferð. 7. september: Krakkafjör í fjöru – 1 skór …
Fréttamolar frá Aðalfundi
Ný gönguleið kynnt á aðalfundi Aðalfundur Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs, sá fjórði frá upphafi, var haldinn á Hótel Vesturlandi fimmtudaginn 20. mars. Fundurinn var ágætlega sóttur og fór afar friðsamlega fram. Á fundinum var farið fyrir þau verkefni sem hafa verið í gangi á vegum félagins. Þar ber hæst fjölbreyttar gönguferðir sem félagið stendur fyrir í hverjum mánuði. Þá vinnur félagið að …
Göngudagskrá 2025
Hér eru þær ferðir, sem búið er að ákveða fyrir árið (birt með fyrirvara um breytingar). Brottfararstaður og tími auglýstur á heimasíðu, www.ffb.is og fésbókarsíðu Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs þegar nær dregur ásamt nánari upplýsingum um hverja ferð. Þátttaka er ókeypis, nema annað sé tekið fram. Við hlökkum til að ganga með ykkur. 25. janúar: Einkunnir – Borg á Mýrum – 1 …
Innheimta árgjalda
Ágætu félagar. Innheimtukröfur v/árgjalda 2024 eru komnar í netbanka með gjalddaga 21.05.2024 og eindaga 01.06.2024 Fullt árgjald er 8.900 kr., en þar sem tveir eru á sama heimili greiðir annar aðilinn hálft gjald. Í framhaldi af greiðslu fær viðkomandi sendan tölvupóst með rafrænu félagsskírteini, sem hægt er að vista í síma, en þeir sem kjósa frekar að fá félagsskírteini á …
Aðalfundur Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs
Aðalfundur Ferðafélags Borgarfarðarhéraðs verður haldinn miðvikudaginn 20. mars n.k. í Hátíðarsalnum í Reykholti (Gamla héraðsskólahúsinu) og hefst hann kl. 20.00. Dagskrá: Hefðbundin aðalfundarstörf og myndasýning frá starfi félagsins fram til þessa. Kaffiveitingar. Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa allir þeir sem skráðir eru í félagið áður en fundur er settur. Fjölmennum á aðalfund og höfum áhrif á mótun félagsins. Stjórn FFB
Göngudagskrá 2024
Útivera hressir, bætir og kætir og viljum við því hvetja fólk til þátttöku í ferðum okkar. Hér eru þær ferðir, sem búið er að ákveða fyrir árið (birt með fyrirvara um breytingar). Þegar styttist í ferð koma inn nánari upplýsingar í viðburðum, bæði á fésbókinni og hér á heimasíðunni. Hérna er listi yfir þær ferðir, sem búið er að ákveða. …
- Page 1 of 2
- 1
- 2








